Skip to main content
Keahotels
Hótelin okkar

Grímsborgir

Grímsborgir

Koma
Velja dags.
Brottför
Velja dags.
Gestir og stillingar
2 fullorðnir
Leita
Grímsborgir er fimm stjörnu hotel
  • Bar
  • Veitingastaður
  • Frí bílastæði
  • Heitapottur
  • Þráðlaust net

Hótel Grímsborgir er fimm stjörnu hótel með gistingu, veitingar og þjónustu fyrir allt að 240 gesti staðsett í Grímsnesi við Gullna Hringinn með fagra fjallasýn allt um kring. Samtals eru 29 heitir pottar ýmist til einkaafnota eða sameiginlegir þar sem hægt er að njóta útsýnis í fallegu umhverfi, verönd eða svalir eru á öllum herbergjum. Einstaklega friðsæll staður, en samt aðeins 45 mín. akstur frá Reykjavík.

Hugmyndafræðin

Gisting

Hótel Grímsborgir tekur 240 manns í gistingu. Fjölbreytt gisting samanstendur af Superior herbergjum, Junior svítum, svítum, tveggja herbergja íbúðum, og 200 fm lúxus íbúðum. Öll herbergin eru með rúmgóðri verönd eða svölum og aðgangi að einhverjum af 29 heitum pottum á svæðinu.

Veitingastaður/Bar

Hótel Grímsborgir er með glæsilegan veitingastað sem býður upp à la carte matseðil með íslenskum og alþjóðlegum gourmet réttum. Staðurinn tekur um 240 manns í sæti alls. Opið er hjá okkur alla daga og tekið er á móti bókunum í síma 555-7878 eða á sales@keahotels.is Hægt er að bóka í bröns allar helgar frá kl 11:30 – 13:30.

Ráðstefnur/Fundir

Hér á Hótel Grímsborgum er stór og bjartur fundarsalur sem hægt er að skipta niður í tvo minni sali. Fundakynnin eru búin skjávarpa, tjaldi, hljóðkerfi og netaðgangi. Við útvegum ykkur blöð og penna, sé þess óskað.

Við sérsníðum pakka eftir stærð og þörfum viðskiptavina. Hótel Grímsborgir rúmar yfir 200 manns og því auðvelt að halda ráðstefnur og stóra fundi.

Herbergin

Hótel Grímsborgir býður upp á úrval af stílhreinum og þægilegum herbergjum sem gestir geta notið. Allt frá rúmgóðum Superior herbergjum og eftirlátssömum junior svítum til fjölskylduíbúða og einstakra einbýlishúsa, hvert gistirými er vandlega hannað með nútímalegum þægindum.