Skip to main content
Keahotels
Hótelin okkar

Reykjavík Lights

Reykjavík Lights

Koma
Velja dags.
Brottför
Velja dags.
Gestir og stillingar
2 fullorðnir
Leita
Reykjavík Lights er þriggja stjörnu hotel
  • 105 herbergi
  • Morgunverður innifalinn
  • Bar & setustofa
  • Fundaaðstaða
  • Bílastæðahús
  • 2,9 km frá miðbæ

Áfangastaður sem upphefur fornar árstíðir á smekklegan máta. Aðgengileikinn er í fyrirrúmi, enda auðvelt að leggja á einkastæðum hótelsins. Þú getur því lagst í rekkju áhyggjulaus og hlakkað til að vakna á nýjum degi.

HUGMYNDAFRÆÐIN

Hótelið

Ljósið í allri sinni dýrð er í forgrunni á Reykjavík Lights, sem tengir saman íslenska tímatalið til forna og mismunandi eiginleika ljóssins eftir árstíð. Fallegt og jafnvel fróðlegt hótel á stórgóðum stað.

Laugardalur

útivistarparadís

Í Laugardalnum kennir ýmissa grasa, bókstaflega. Þar er til dæmis Grasagarðurinn, hvar þú getur gengið um og andað að þér ilminum frá bæði framandi og kunnulegum plöntum. Þér á eftir að líða eins og í útlöndum. Þá eru í Laugardalnum fleiri útivistarmöguleikar, leikvellir, tún og stígar, auk þess að hýsa auðvitað sjálfa Laugardalslaugina; stærstu sundlaug landsins.

Nágrennið

Endalausir
möguleikar

Þú getur gengið í allar átti út frá hótelinu okkar. Bæði í miðbæinn og næsta nágrenni.  Þú getur leigt rafskútu, fengið þér göngutúr að Sólfarinu, hoppað upp í strætó nú eða farið í ferðin utan höfuðborgarinnar. Bláa lónið, Sky Lagoon, Gullfoss og Geysir, það eru jú endalausir möguleikar.